Háteigur
Glæsilegur salur á fjórðu hæð hótelsins með frábæru útsýni og svölum
Háteigur er veislusalur á 4. hæð Hótel Reykjavík Grand með stórbrotnu útsýni og aðgengi að svölum. Salurinn hentar vel fyrir veislur og viðburði af ýmsu tagi, allt frá brúðkaupum og móttökum til funda og einkasamkvæma. Falleg vegglýsing og ljós í loftinu skapa hlýlega og eftirminnilega stemningu.
Salurinn rúmar allt að 170 gesti við hringborð, 200 gesti í bíóuppstillingu og 50 gesti í U-uppstillingu. Háteigur leigist út með hringborðum, en hægt er að breyta uppstillingu salarins eftir þörfum gegn breytingagjaldi.
Í salnum er þráðlaus nettenging og fundarbúnaður, þar á meðal skjávarpi, sýningartjald, hljóðkerfi, púlt og panel-hljóðnemi. Fyrir framan salinn er rúmgott forrými sem hentar vel fyrir fordrykk, móttökur og samveru gesta áður en viðburður hefst.
Configuration options
Tækjabúnaður sem er innifalinn í salarleigu
Frequently asked questions
Innifalið í salarleigu er sýningartjald & skjávarpi/skjár, púlt og hljóðnemi í púlti, Wi-Fi, hljóðkerfi fyrir talað mál, tæknimaður sem hittir fundarstjóra við upphaf fundar og ef óskað er eftir: svið, panell og skráningarborð.
Ath. gjald er tekið fyrir auka tæknibúnað, sjá yfirlit yfir tæknibúnað í boði
Hér er listi yfir þann auka tæknibúnað sem er í boði gegn auka gjaldi:
- Þráðlaus handhljóðnemi
- Hljóðnemaspöng
- Panel hljóðnemar
- Fartölva
- Flettari
- Flettitafla m. blöðum
- Skjár á fæti 43" eða 65"
- Comfort monitor 43"
- Panelskjár 21" eða 24"
- Logitech fjarfundarkeila – lítil
- Fjarfundarbúnaður – stærri
- Led ljós
- Píanó
- Flygill
- Færanlegt hljóðkerfi
- Dansgólf
- Streymi uppsetning
- Upptaka uppsetning
- Hljóðupptaka
- Videomixer
- Yfirseta tæknimanns virka daga 08:00 – 16:00 á klst (greitt f. a.m.k. 4 klst)
- Yfirseta tæknimanns eftir kl. 16:00 og um helgar á klst (greitt f. a.m.k. 4 klst)
- Auka sviðspallur
- Monitor
1. Skjávarpi og sýningartjald
2. Svið
3. Púlt og hljóðnemi
4. Nettenging
5. Þrif, borðbúnaður, dúkar og þjónusta
6. Uppsetning: hringborð (ath auka kostnaður er ef uppsetning er önnur)Skemmtanaleyfi er til kl. 01:00.
Nei ekki er hægt að leigja sal án veitinga
General Info
Auka þjónusta
- Nammibar
- Myndakassi
- Kvöldhressing
Matseðlar



