Miðgarður
Miðgarður er glæsilegt opið rými á jarðhæð Hótel Reykjavík Grand og hýsir aðalmóttöku hótelsins. Rýmið hentar afar vel fyrir móttökur og fordrykki í tengslum við stærri veislur og viðburði.
Svæðið er bjart og rúmgott, með allt að 17 metra lofthæð sem skapar glæsilegt yfirbragð. Athygli er vakin á því að rýmið er opið og ekki hægt að loka af. Í Miðgarði er einnig bar, skreyttur glerlist sem sækir innblástur í Ragnarök, þar sem gestir geta sest niður, notið umhverfisins og slakað á yfir drykk áður en viðburður hefst.
Configuration options
Frequently asked questions
Innifalið í salarleigu er sýningartjald & skjávarpi/skjár, púlt og hljóðnemi í púlti, Wi-Fi, hljóðkerfi fyrir talað mál, tæknimaður sem hittir fundarstjóra við upphaf fundar og ef óskað er eftir: svið, panell og skráningarborð.
Ath. gjald er tekið fyrir auka tæknibúnað, sjá yfirlit yfir tæknibúnað í boði

