Flatey
Flatey er notalegur og vel skipulagður salur á Fosshótel Húsavík sem hentar jafnt fyrir vinnustofur, kynningar og meðalstóra fundi sem og minni veislur, móttökur og einkasamkomur. Salurinn er 66 m² að stærð og býður upp á ýmsar uppstillingar á salnum, sem auðvelt er að laga að eðli og tilefni hvers viðburðar.
Í Flatey er hægt að skapa bæði faglega og hlýlega umgjörð fyrir viðburði. Salurinn rúmar allt að 56 manns í leikhúsuppstillingu, 35 manns í kennslustofuuppstillingu og 25 manns í U-uppstillingu, eftir því hvernig rýmið er nýtt. Þrátt fyrir staðsetningu í kjallara er andrúmsloftið rólegt og afslappað – vel til þess fallið að hýsa bæði þétta dagskrá og notalegar stundir í góðum félagsskap.
Útfærslumöguleikar á sal
Spurt og svarað
Innifalið er: skjár, skjávarpi, púlt með hljóðnema, þráðlaus nettenging og hljóðkerfi.

