Þingey
Hámarksfjöldi
70Stærð í fm.
89Lengd
14,8Breidd
5,8Hæð
3,2Þingey er rúmgóður salur á Fosshótel Húsavík sem hentar jafnt fyrir fundi, vinnustofur og kynningar sem og einkaveislur, afmæli og móttökur. Salurinn er 89 m² að stærð og býður upp á ýmsar uppstillingar á salnum, sem auðvelt er að laga að þörfum hópsins og eðli viðburðarins.
Í Þingey er hægt að skapa bæði faglega og hlýlega umgjörð fyrir viðburði. Salurinn rúmar allt að 70 manns í leikhúsuppstillingu, 60 manns í kennslustofuuppstillingu og 50 gesti í hringborðsuppstillingu, sem gerir hann vel fallinn fyrir minni ráðstefnur jafnt sem veislur. Þrátt fyrir staðsetningu í kjallara nýtur salurinn dagsbirtu, sem skapar bjart og notalegt andrúmsloft.
Útfærslumöguleikar á sal
Fundarherbergi
36
Hringborð
50
Kennsla
60
U Borð
32
Leikhús
70
Spurt og svarað
Innifalið er: skjár, skjávarpi, púlt með hljóðnema, þráðlaus nettenging og hljóðkerfi.
